Martin Frewer

Martin Frewer lærði stærðfræði við Oxford University á sama tíma og hann sótti einkatíma hjá fiðlukennaranum Yfrah Neaman. Eftir útskrift frá Oxford hélt hann áfram fiðlunámi í Guildhall School of Music & Drama í London hjá Yfrah Neaman og lærði þá einnig á víólu hjá Nannie Jaimeson. Árið 1983 fluttist Martin til Íslands til að spila með Sinfóníuhljómsveitinni. Um aldamótin tók hann frí í tvö og hálft ár og vann þá sem hugbúnaðarhönnuður. Núna starfar hann bæði við hugbúnaðargerð hjá hátæknifyrirtækinu Völku og sem tónlistarmaður. Hann spilar á fiðlu í Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt ýmsum kammersveitum og hópum. Martin útsetur einnig og stjórnar.

Martin Frewer studied mathematics at Oxford University during which time he took violin lessons with Yfrah Neaman. After his degree Martin continued his violin studies at the Guildhall School of Music & Drama with Yfrah Neaman and learnt the viola with Nannie Jaimeson. In 1983 Martin moved to Iceland to join the Iceland Symphony and has played with them since. Around the turn of the century he took two and a half years break and worked as Software developer. Now he works mainly with music. He plays violin in Iceland Symphony as well as various groups. Martin also arranges and conducts.

Tenglar/Links