|
Ágústa M. Jónsdóttir (fiðla) stundaði nám við Barnamúsíkskólann í Reykjavík, lauk fiðlukennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1976 og stundaði nám við Houcshule für Musik und darstellende Kunst í Vín, í Austurríki, á árunum 1976 - 1977. Ágústa var fiðlukennari við Tónlistarskólann í Keflavík og Njarðvík á árunum 1977 - 1978 og hefur kennt við tónskólann DO-RE-MÍ frá haustinu 2003. Ágústa hefur leikið í Árstíðakvartettinum frá 1994 og hefur verið fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 1979. |
|
Kathryn Harrison (víóla) er fædd í Derby á Englandi. Hún stundaði tónlistarnán í Huddersfield Polytecnhic á árunum 1982 - 1985 og í Guildhall School of Music & Drama á árunum 1985 - 1986. Kathryn kom til Íslands árið 1986 og hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands æ síðan. |
|
Martin Frewer útskrifaðist sem stærðfræðingur frá Oxford University. Á sama tíma var hann í einkatímum hjá fiðlukennaranum Yfrah Neaman. Eftir útskrift hélt hann áfram fiðlunámi í Guildhall School of Music & Drama í London hjá Yfrah Neaman og lærði þá einnig á víólu hjá Nannie Jaimeson. Árið 1983 fluttist Martin til Íslands til að spila með Sinfóníuhljómsveitinni. Um aldamótin tók hann frí í tvö og hálft ár og vann þá sem hugbúnaðarhönnuður. Núna starfar hann bæði við hugbúnaðargerð hjá hátæknifyrirtækinu Völku og sem tónlistarmaður. Hann spilar með Biber tríóinu, Sardas kvartettinum, Árstíðakvartettinum, Bachsveitinni í Skálholti og ýmsum kammersveitum og hópum auk SÍ. |
|
Ólöf S.Óskarsdóttir (selló) Ólöf Sesselja stundaði framhaldsnám í csellóleik í Oslo Osló í Noregi í fjögur ár og hefur sótt tónlistarnámskeið í Austurríki, Belgíu, Noregi, Danmörku, á Englandi og á Íslandi. Hún hefur spilað með Sinfóníuhljómsveit. Íslands. frá árinu1980 og verið virk í tónleikahaldi m. a. með Nýju strengjasveitinni, Íslensku hljómsveitinni, Musica Antiqua, , á Sumartónleikum í Skálholti, með Kammersveit Reykjavíkur, Árstíðakvartettinum, Barokkhópnum, Contrasti-hópnum og mörgum kórum á Reykjavíkursvæðinu. Ólöf hefur tilheyrt hópum sem flytja endurreisnar- og barokktónlist á upprunaleg hljóðfæri og leikið þar á viola da gamba. Hún hefur einnig tekið þátt í flestum uppfærslum Íslensku óperunnar. Var Ólöf var scelló-kennari til margra ára í Tónmenntaskóla Reykjavíkur og í nokkur ár í Tónlistarskóla Kópavogs. Ólöf hlaut listamannalaun til 6 mánaða árið 2000. |
