|
Martin Frewer útskrifaðist sem stærðfræðingur frá Oxford University. Á sama tíma var hann í einkatímum hjá fiðlukennaranum Yfrah Neaman. Eftir útskrift hélt hann áfram fiðlunámi í Guildhall School of Music & Drama í London hjá Yfrah Neaman og lærði þá einnig á víólu hjá Nannie Jaimeson. Árið 1983 fluttist Martin til Íslands til að spila með Sinfóníuhljómsveitinni. Um aldamótin tók hann frí í tvö og hálft ár og vann þá sem hugbúnaðarhönnuður. Núna starfar hann bæði við hugbúnaðargerð hjá hátæknifyrirtækinu Völku og sem tónlistarmaður. Hann spilar með Biber tríóinu, Sardas kvartettinum, Árstíðakvartettinum, Bachsveitinni í Skálholti og ýmsum kammersveitum og hópum auk SÍ. |
